laugardagur, janúar 06, 2007

Viðhengið fór hamförum í Hagkaupum á miðvikudaginn. Við kassann stóð fín frú og þegar hún er að tína vörurnar upp á færibandið dettur dularfull blá kremtúba í gólfið. Davíð er kurteis maður fram í fingurgóma, beygir sig niður, réttir fínu frúnni og spyr “Átt þú þetta?” Hún kvað nei við og skellihló.
Ég var aðeins of sein að grípa inn í atburðarrásina, því ég sá náttúrulega strax að þetta var helblátt sleipiefni með blómailmi sem selt er við kassa í öllum betri matvælaverslunum landsins nú til dags og á stendur stórum stöfum durex. Ég sagði því stórhneyksluð: “Nei, þetta á að vera ÞARNA í hillunni!” “Ó” sagði Davíð og áttaði sig ekki á neinu. Horfir upp í loftið og eftir dúk og disk sér hann svo hvað stendur á túbudruslunni. Roðnar þá náttúrulega fram í fingurgóma, snýr sér við og segir við mig stundarhátt: “Æjjjji! Mig langar í ópal!” og leit ekki af ópalrekkanum fyrr en fína frúin var horfin á braut. Ég keypti handa honum ópal og á meðan við bruddum ópalinn sagði hann mér að hann hefði bara verið sannfærður um að þetta væri handáburður, bölvaði durex í sand og ösku fyrir að merkja ekki varninginn betur og Hagkaupum fyrir að geyma þetta á svona asnalegum stað. Hver vill svo sem sagt hafa við fína frú: “Heyrðu, eruð þetta kitlusmokkarnir yðar, kæra frú?”

Að öðru leyti hefur nýja árið gengið stórslysalaust fyrir sig. Komum heim 3. jan og héldum matarboð bæði í gær og í dag. Hreindýr var borið á borð fyrir tengdaforeldrana en Hulda og Krissi fengu spínatböku.

5 ummæli:

  1. Já, hjartans þakkir fyrir hreindýrið, langt síðan ég hef borðað svona góðgæti. Maður hálfskammast sín fyrir að bjóða ykkur svo alltaf í lamb!

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus10:08 e.h.

    Gleðilegt ár, það var gaman að sjá þér "bregða fyrir" á sjúkrahúsinu fyrir jólin.
    Annars hristist ég hér af hlátri yfir síðustu færslu og kunni ekki við annað en kvitta fyrir komunni. Kv Stína

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus7:16 f.h.

    Fliss!

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus9:33 e.h.

    vá ég hló upphátt yfir þessari bloggfærslu! það gerist ekki oft:)

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus5:15 e.h.

    Fyndið að stjórnandi kláblaðs í denn skyldi roðna yfir kremtúbu.

    SvaraEyða