sunnudagur, ágúst 12, 2007

Steríótýpískur Sími

Ég tók mér langan labbitúr áðan og tók eftir því að Síminn hefur tekið upp þá sorglegu stefnu að reyna að höfða til óhamingjusams fólks öðru fremur:

"Að rífast við kærastann í 33 mínútur en borga bara 3"

Ég held að nær væri að benda þeim sem þurfa að borga svo háa símreikninga fyrir það eitt að rífast við kærastann sinn í gegnum síma að þeim þykir ástæða til að skipta um símafyrirtæki til þess að geta gert það næstum ókeypis, á að fá sér bara nýjan kærasta. Það mun örugglega spara viðkomandi talsvert mikinn tíma, því þá þyrfti sá hinn sami ekki að eyða ævinni í að bíða þegar hann þarf að hringja í þjónustuver Símans.

Óháð þessu öllu saman, þá finnst mér ansi lummó af Símanum að stíla þessa nýju auglýsingarherferð aðeins á kjellingar og homma. Ég las í gær á skilti í gleðigöngu: Burt með staðalímyndir. Síminn er greinilega á öndverðu meiði.

Ég græt ekki yfir bíómyndum. Hins vegar verð ég alltaf hrærð á Gay Pride og svei mér þá ef ég felldi ekki eitt lítið tár þegar gleðigangan fór af stað í gær.

2 ummæli:

  1. Eða að fá sér bara skæp - þá er hægt að rífast eins lengi og maður vill fyrir 0 krónur, og líka í mynd! Vúhú!

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus10:27 f.h.

    Æi, það hefur svo lítið upp á sig að rífast. Þetta er hallærisleg auglýsingaherferð en hún hefur sem betur fer alveg farið framhjá mér.

    SvaraEyða