fimmtudagur, október 18, 2007

Pósturinn

Allur pakkin....

... ef þér tekst að finna pósthús!

Í gær kostaði það mig um hálftíma rúnt um hálfa Reykjavík að finna pósthús. Í leiðinni fann ég hins vegar fjögur fyrrverandi pósthús. Hvar er gamli góði Póstur og sími?

Allt var betra þegar ég var lítil.

1 ummæli:

  1. Þér til upplýsingar þá er pósthús í Hagkaupum á Seltjarnarnesi - stundum þegar mikið er að gera í búðinni er manni bent á að fara með matvöruna í pósthúsið og borga þar.

    SvaraEyða