sunnudagur, nóvember 02, 2008

Mannvonska, viðbjóðsháttur og siðblinda

Ég var að velta fyrir mér einni vondri frétt af fúlmennsku á Fljótsdalshéraði. Ég gerðist áskrifandi að Austurglugganum um daginn og í síðasta blaði var sagt frá kattapyndingum sem eru skv. héraðsdýralækni farin að verða daglegt brauð þarna í minni gömlu heimabyggð. Ég var að spá í hvort siðblinda væri sjúkdómur og þá hvort hún væri smitandi eða hvort hún væri tískufyrirbæri. Það er ekki svo langt síðan að Perla hans Kidda var skotin til bana í miðri mannabyggð. Ætli þetta hafi almennt þótt flott eða smitaðist byggðin af morðæði án þess að fá nokkuð við ráðið?

3 ummæli:

  1. Nafnlaus7:50 e.h.

    Frekar sjokkerandi frétt verð ég að segja. Ég hef enga skýringu, vona bara að menn taki sig saman um að uppræta þennan ósóma.

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus2:02 e.h.

    Já. OJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJ bara!!!

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus3:19 e.h.

    Ég þurfti næstum áfallahjálp þegar ég las þetta og hef alltaf smá áhyggjur þegar Klófríður og Kolgríma fara út. Ég veit ekki hvað ég myndi gera ef kisurnar mínar lentu í þessum níðingum.
    Það er alveg ótrúlegt að einhver skuli gera svona nokkuð við lifandi dýr. Jafn óskiljanlegt og þegar ... skaut köttinn hans Kidda.
    kveðja
    Rannveig Árna

    SvaraEyða