föstudagur, júní 12, 2009

Rúst

Ég fékk smeðjulegt höfnunarbréf í dag frá Nýsköpunarsjóði námsmanna. 

Fúl? Já, hund. Ég var handviss um að ég fengi hann. Ofmat á eigin hugmyndum? Örugglega. Vonbrigði? Klár. 

Verkefnið verður samt unnið, kauplaust eður ei. Hugsanlega var það líka ein af ástæðum höfnunarinnar. Þeir hafa séð það í hendi sér að styrkurinn hefði ekki haft úrslitaáhrif um það hvort verkefnið yrði sett í gang eða ekki.

Ég ætla að taka þátt í prjónahönnunarkeppni Tinnu í staðinn. Það eru trúlega jafnmiklar líkur á því að tónlistarnemi gangi í augun á prjónameisturum og styrkveitendum Rannís. Ef ég vinn, þá ætti verðlaunaféð að duga fyrir verkefninu. 

Og í dag halda allir skrásettir í Dalinn væna. Ég fylgi ykkur í huganum. 

2 ummæli:

  1. Gott hjá þér! Við gefumst aldrei upp þótt móti blási. Sleppi þessu með kóngana það er eitthvað svo gasalega 2007.

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus8:49 f.h.

    Og rústa svo prjónakeppninni! Hér er setið við að prjóna svefnpoka fyrir ungabörn, enda þykir Þjóðverjum notkun á sæng nánast á við morðyfirlýsingu gagnvart nýfæddum börnum. Margt er misjafnt milli landa : )
    Kv. frá Hamborg

    SvaraEyða