mánudagur, ágúst 10, 2009

Skeyti

Tölvupóstur er asnalegt orð - stopp

et. tölvupóstur, ft. tölvupóstar - stopp

Hvernig í ósköpunum dettur fólki, þá ekki síst fjölmiðlafólki í hug að samþykkja þetta herfilega orðskrípi - stopp

Sérstaklega í ljósi þeirrar staðreyndar að við eigum hið ljómandi fína orð skeyti yfir orðsendingar sem skila sér samdægurs - stopp

Hvernig var hægt að klúðra því að koma í gagnið almennilegri þýðingu á orðinu e-mail - stopp

Það sendir hvort sem er enginn telegramm nú á dögum - stopp

Ég sendi aldrei tölvupóst, þaðan af síður tölvupósta - stopp

Ég sendi hins vegar mörg skeyti á dag - stopp

Yfir og út - stopp

1 ummæli:

  1. Nafnlaus6:47 e.h.

    Ah, takk fyrir þessa ábendingu stop Ég hef verið að bögglast með þetta orð, tölvupóstur en aldrei dottið skeyti í hug stop mun reyna að tileinka mér það héðan í frá stop

    SvaraEyða